spot_img
HomeFréttirStjörnuhrap í Grindavík

Stjörnuhrap í Grindavík

Grindavík sigraði Stjörnuna í 14. umferð Domino´s deildar karla í körfubolta fyrr í kvöld á heimavelli sínum, í Röstinni, með 104 stigum gegn 92.  Grindvíkingar því komnir í 5. sæti deildarinnar með 14 stig og þá aðeins einum sigurleik fyrir aftan Stjörnuna, sem situr í því 3.
 

 

Leikurinn fór fjörlega af stað. Þar sem að heimamenn komust fljótlega í naumt 8 stiga forskot, sem Stjarnan var þó fljót að skera niður og endaði fyrsti leikhlutinn með 2 stiga forskoti heimamanna í 25-23, en í honum höfðu bæði leikmaður Stjörnunnar, Dagur Kár Jónsson, sem og leikmaður Grindavíkur, Rodney Alexander náð að setja 10 stig hvor.

 

Annar leikhlutinn fór svipað af stað og sá fyrsti, nema að þá var það Stjarnan sem tók af skarið og náði sér í nokkurra stiga forskot sem að Grindavík var svo aftur fljótt að skera niður og snúa sér í vil. Staðan var 54-49, heimamönnum í vil þegar haldið var til búningsherbergja eftir fyrri hálfleik.

 

Í þriðja leikhlutanum hélt leikurinn svo áfram í svipuðum gír, þar sem liðin skiptust á að setja niður nokkur stig í röð hvort rétt áður en að hitt svaraði. Fyrir lokaleikhlutan var staðan því 72-69 og allt stefndi í allsvakalegan lokaleikhluta.

 

Fljótlega í þeim fjórða mátti þó sjá að Grindavík virtist eilítið meira tilbúið í að vinna þennan leik en Stjarnan. Þar sem að bæði var sóknarleikur þeirra skipulagðari, menn þeirra spiluðu betri vörn sem og tóku þeir ógrynni af sóknarfráköstum í leikhlutanum. Því fór sem fór að Grindavík fór með sigur af hólmi með 104 stigum gegn 92 í, að mestu leyti, spennandi og skemmtilegum körfuboltaleik.

 

Maður leiksins var leikmaður Grindavíkur, Jón Axel Guðmundsson, sem skilaði hæstu framlagi (36) allra leikmanna á vellinum, en hann skoraði 22 stig, gaf 12 stoðsendingar, tók 5 fráköst og stal 4 boltum á þeim 36 mínútum sem hann spilaði í leiknum. 

 

 

Myndasafn 

Tölfræði 

 

Grindavík-Stjarnan 104-92 (25-23, 29-26, 18-20, 32-23)
 
Grindavík: Rodney Alexander 27/14 fráköst, Jón Axel Guðmundsson 22/5 fráköst/12 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 16/6 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 15/6 fráköst, Daníel Guðni Guðmundsson 11, Oddur Rúnar Kristjánsson 8, Hinrik Guðbjartsson 3, Ómar Örn Sævarsson 2/4 fráköst, Hilmir Kristjánsson 0, Nökkvi Harðarson 0, Þorsteinn Finnbogason 0, Ingvi Þór Guðmundsson 0.
 
Stjarnan: Dagur Kár Jónsson 26/5 fráköst/5 stoðsendingar, Justin Shouse 21/5 fráköst/9 stoðsendingar, Jarrid Frye 12/5 fráköst, Jeremy Martez Atkinson 10, Tómas Þórður Hilmarsson 8/4 fráköst, Ágúst Angantýsson 7, Marvin Valdimarsson 5/6 fráköst, Daði Lár Jónsson 3, Sigurður Dagur Sturluson 0, Elías Orri Gíslason 0, Christopher Sófus Cannon 0, Brynjar Magnús Friðriksson 0.
 
Dómarar: Jón Guðmundsson, Björgvin Rúnarsson, Ísak Ernir Kristinsson

 

Umfjöllun,myndir,viðtöl/ Davíð Eldur

Dagur Kár – Stjarnan:

 

Sverrir Þór – Grindavík:

 

Hrafn Kristjánsson – Stjarnan:

 
Fréttir
- Auglýsing -