Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir Unicaja í ACB deildinni á Spáni, 112-72.
Eftir leikinn eru Zaragoza í 12. sæti deildarinnar með sex sigra og níu töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 8 stigum, 5 fráköstum og stolnum bolta.
Næsti leikur Tryggvar og Zaragoza í deildinni er þann 9. janúar gegn Murcia.