Körfuboltatölfræðingurinn Hörður Tulinius hefur reiknað út stöðu liða Subway deildar karla eftir fyrstu 10-11 umferðirnar útfrá því sem í daglegu tali þekkist sem tölfræði fyrir lengra komna (e. advanced statistics) og þekkist víða í hinum stóra heimi körfubolta.
Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius
Samkvæmt greiningunni er Þór besta lið deildarinnar með 11,6 í Net Rating. Næst á eftir þeim kemur Njarðvík með 9,1, og Keflavík í því þriðja með 8,5. Versta lið deildarinnar eru Þór Akureyri með -20,6 í Net Rating, en þar undan er Vestri með -9,3 og ÍR þriðja versta liðið með -6,9.
Á sóknarhelmingi vallarins eru Þórsarar bestir, með 3,3 í einkunn, Njarðvík fyrir aftan þá með 4,3 og Breiðablik með þriðju bestu sóknina, 4,4. Versta sókn deildarinnar er hjá Þór Akureyri, en einkunn þeirra er 10,3 og næst versta sóknin er í Grindavík, 6,2.
Á varnarhelmingi vallarins ber Keflavík svo höfuð og herðar yfir önnur lið, með 2,9 í einkunn, en versta vörnin hingað til hefur verið hjá Breiðablik, 10,8.
Þá er þarna einnig að finna útreikninga fyrir hraða liðanna. Samkvæmt útreikningum spilar Breiðablik langsamlega hraðast 88.6 sóknir í leik á meðan að Valur spilar hægast, 76.5 sóknir að meðaltali í leik.