Tveimur leikjum sem fara áttu fram komandi fimmtudag í Subway deild karla hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í leikmannahópum liða Tindastóls og ÍR.
Annars vegar er það leikur Vals og Tindastóls og hinsvegar leikur ÍR og Stjörnunnar, en leikjunum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími.
Tilkynning:
Mótanefnd KKÍ hefur frestað tveimur leikjum í Subway deild karla sem voru á dagskrá næsta fimmtudag. Annars vegar er þetta leikur Vals og Tindastóls og hins vegar leikur ÍR og Stjörnunnar. Þetta er til komið vegna COVID smita í leikmannahópum Tindastóls og ÍR.
Leikjunum hefur ekki enn verið fundinn nýr leiktími.