Tveimur leikjum sem fara áttu fram á morgun 2. janúar í fyrstu deild kvenna hefur verið frestað vegna veðurs.
Er það leikur Vestra og Aþenu sem fara átti fram á Jakanum á Ísafirði og viðureign Ármanns og Þórs í Höllinni á Akureyri, en Vegagerðin hefur varað við ferðalögum bæði í dag og á morgun.
Samkvæmt tilkynningu verður leikjunum tveimur fundinn nýr leiktími eins fljótt og auðið er.
Tilkynning:
Tveimur leikjum hefur verið frestað í 1. deild kvenna sem voru á dagskrá þann 2. janúar 2022.
Frestunin kemur til þar sem Vegagerðin hefur varað við ferðalögum þann 1. janúar og fram yfir hádegi þann 2. janúar. Þetta eru leikir Vestra og Aþenu/UMFK annars vegar, og leikur Þórs Ak. og Ármanns hins vegar. Leikjunum verður fundinn nýr leiktími eins fljótt og auðið er.