spot_img
HomeFréttirÞetta er íslenska liðið sem mætir Ungverjalandi kl. 15:00 í dag –...

Þetta er íslenska liðið sem mætir Ungverjalandi kl. 15:00 í dag – Bein tölfræði frá leiknum hér

Íslenska karlalandsliðið leikur gegn Ungverjalandi í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma. 

Þetta er seinni leikur liðsins á æfingamóti í Ungverjalandi en í gær lögðu þeir Ísrael með 2 stigum, 79-81.

Leikirnir eru liðir í undirbúningi liðsins fyrir forkeppni Ólympíuleikanna sem fram fer í Tyrklandi nú í ágúst, en þar mun liðið etja kappi við nokkrar sterkar þjóðir um laust sæti á leikunum sem fram fara í París á næsta ári.

Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði hér.

Hér fyrir neðan má sjá 12 leikmanna lið Íslands í leik dagsins

Hilmar Smári Henningsson · Haukar · 10
Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu · 26
Kristinn Pálsson · Aris Leuuwarden, Hollandi · 27
Orri Gunnarsson · Haukar · 1
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll · 12
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar · 61
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll · 29
Sigurður Pétursson · Breiðablik · 1
Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn · 10
Tryggvi Snær Hlinason · Bilbao Basket, Spánn · 59
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · Oviedo, Spánn · 23
Ægir Þór Steinarsson (Fyrirliði) · Stjarnan · 81

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -