Njarðvíkurkonur hafa styrkt leikmannahópinn fyrir komandi átök í Subway-deild kvenna, en þrír leikmenn hafa samið við félagið á undanförnum dögum.
Tynice Martin er frá Bandaríkjunum en spilaði á síðasta tímabili með Vive í Finnlandi við góðan orðstír. Tynice er 180cm fjölhæfur bakvörður sem getur leyst margar stöður á vellinum.
Andela Strize er Króati sem hefur spilað í heimalandinu allan sinn feril ásamt því að spila með yngri landsliðum Króatíu. Andela er 24 ára bakvörður sem skoraði 17 stig að meðaltali með liði Medvescak á síðustu leiktíð.
Ena Viso kemur svo til Njarðvíkur frá Danmörku en Ena er hávaxinn bakvörður sem getur leyst stöðu leikstjórnanda. Hún spilaði afar vel með liði BK Amager á síðustu leiktíð og var m.a. valin Bakvörður Ársins á Eurobasket í dönsku deildinni. Ena er 30 ára og hefur spilað með danska landsliðinu á síðustu árum og kemur með mikla reynslu inn í Njarðvíkurliðið.
„Ég er virkilega spenntur að fá þessa leikmenn til liðs við okkur – þær eru allar ansi fjölhæfar og með mörg vopn sóknarlega ásamt því að vilja setja tóninn varnarlega. Allar hafa þær verið leiðtogar í sínum félagsliðum og berum við miklar væntingar til þeirra á því sviði líka. Ég get allavega lofað að það verður gaman að horfa á Njarðvíkurliðið spila körfubolta í vetur,“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkurliðsins.