spot_img
HomeFréttirAl´lonzo Coleman til liðs við Stjörnuna

Al´lonzo Coleman til liðs við Stjörnuna

Bikarmeistarar Stjörnunnar hafa samið við Al´lonzo Coleman fyrir næsta vetur. Coleman er rétt rúmlega 2 metrar á hæð og útskrifaðist frá UNC Presbyterian háskólanum árið 2012 þar sem hann skoraði 16,9 stig og tók 8,8 fráköst í leik. Síðastliðin vetur spilaði hann í næstefstu deild í Argentínu þar sem hann skoraði 15,1 stig og tók 6 fráköst í leik.

 

Í frétt á vefsvæði kkd. Stjörnunnar segir:

 

Al´lonzo þykir klókur, fjölhæfur leikmaður í kringum körfuna sem getur skorað á marga vegu.   Aðspurður sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, hafa fylgst með Coleman og haft augastað á honum síðan hann útskrifaðist úr háskóla og því gripið tækifærið þegar hann bauðst nú.  „Mér hefur alltaf fundist Coleman vera leikmaður sem myndi henta vel í deildina hér heima, fjölhæfur strákur sem er sterkur í teignum en getur líka gert aðra hluti mjög vel sem hjálpa liðinu“.

 

Leikmannahópur og þjálfarateymi karlaliðs Stjörnunnar er nú fullskipaður að sögn Hrafns nema eitthvað stórkostlega óvænt komi upp á fram að móti.  „Við erum ánægðir með þann hóp sem við erum komnir með, teljum hann mátulega blöndu af eldri og yngri leikmönnum þar sem þeir eldri geta haldið áfram að styrkja þá yngri í sinni þróun.  Hvort hópurinn nægi svo til að ná hinu aðalmarkmiði okkar sem snýr að árangri í öllum keppnum verður svo að koma í ljós þegar á hólminn er komið“.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -