spot_img
HomeFréttirReyndi að verja skot með skónum sínum

Reyndi að verja skot með skónum sínum

Rico Maierhofer, leikmaður Barako Bull Energy liðsins í Filipseysku deildinni, missti af sér annan skóinn í miðjum leik gegn San Miguel Beermen (nei, ég er ekki að skálda þessi nöfn) lét hann það ekki á sig fá heldur hélt áfram að spila á fullu. Hann dó heldur ekki ráðalaus þegar Gabriel Espinas leikmaður Beermen ætlaði að reyna skot undir körfunni og hóf skóinn á loft til að verja skotið.

 

Gárungar í boltanum segja hann heppinn að fá ekki tæknivillu fyrir að beita "aðskotahlut" í vörninni.

 

Fréttir
- Auglýsing -