spot_img
HomeFréttirUnicaja Malaga minnkaði muninn í 2-1 með sigri í framlengingu

Unicaja Malaga minnkaði muninn í 2-1 með sigri í framlengingu

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Unicaja börðust fyrir lífi sínu í undanúrslitum spænsku deildarinnar í kvöld og höfðu sigur af. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma eftir frábæran sprett hjá heimamönnum í Malaga og tókst þeim svo að innsigla sigurinn með því að vinna framlenginguna 15-10. Mikilvægur 89-84 sigur hjá Malaga sem tryggir sér áframhaldandi tilvist í undanúrslitunum.

 

Jón Arnór skoraði 7 stig á 14 mínútum og hitt mjög vel í leiknum með 2/4 í tveggja stiga og 1/1 í þriggja. Carlos Suárez leiddi Malaga liðið með 13 stig og 11 fráköst en Deshaun Thomas leiddi Barcelona með 17 stig og 5 fráköst.

 

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -