Baldur Ingi Jónasson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar er spenntur fyrir komandi leiktíð enda félagið búið að hrúga til sín leikmönnum á undanförnum vikum. Hann segir þá reynslu úr efstu deild sem Margrét Kara búi yfir muni hjálpa nýliðum Stjörnunnar mikið, en fæstir leikmanna liðsins hafa spilað í úrvalsdeildinni.