spot_img
HomeFréttirJayson Tatum blóðgar Grikkja með þessari troðslu

Jayson Tatum blóðgar Grikkja með þessari troðslu

Grikkir láta ekki efnahagslegt hrun og þumalskrúfuna frá Evrópusambandinu trufla sig í að halda heimsmeistaramót U19 í körfubolta. Í gær tóku gestgjafarnir á móti Bandaríkjamönnum í undanúrslitum mótsins en töpuðu með 6 stiga mun 82-76

 

Jayson Tatum leikmaður bandaríska liðsins átti hins vegar tilþrif dagsins þegar hann hamraði troðslu (bókstaflega) í grímuna á grískum varnarmanni – svo illa að haldið var að sá gríski væri nefbrotinn skömmu eftir þetta.

 

Tatum útskrifast úr miðskóla næsta vor og hafa nú þegar skólar eins og Duke, Kentucky og UNC reynt að tæla guttann til sín.

 

Fréttir
- Auglýsing -