spot_img
HomeFréttirKarma er tík - Tatum blokkaður í troðslu

Karma er tík – Tatum blokkaður í troðslu

Það var ekki liðinn sólarhringur frá því Jayson Tatum nánast nefbraut leikmann Grikklands með troðslu í undanúrslitaleik heimsmeistaramóts U19, þegar hann ætlaði að endurtaka leikinn en var hafnað við hringinn.

 

Tatum komst einn upp í hraðaupphlaup í úrslitaleik mótsins milli Bandaríkjanna og Króatíu. Hann hóf sig til lofts en þar mætti honum Nik Slavica og varði troðslutilraun hans við hringinn.  Mögnuð tilþrif.

 

Fréttir
- Auglýsing -