spot_img
HomeFréttirHlynur fyrir leikinn stóra á morgun gegn heimamönnum í Grikklandi "Við vitum...

Hlynur fyrir leikinn stóra á morgun gegn heimamönnum í Grikklandi “Við vitum það núna að við getum unnið þá”

Undir 20 ára karlalið mætir Grikklandi kl. 15:30 á morgun í 16 liða úrslitum A deildar Evrópumótsins í Heraklion á Krít.

Hérna er heimasíða mótsins

Hérna er 12 manna lið Íslands á mótinu

Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði

Í riðlakeppni mótsins hafði Ísland einn sigur, gegn Slóveníu, tapaði naumlega gegn Þýskalandi í öðrum leik og síðan nokkuð stórt fyrir Frakklandi í þriðja og síðasta leiknum. Grikkland hafði hinsvegar unnið tvo og tapað einum, en þeir unnu bæði Pólland og Króatíu, en töpuðu fyrir Litháen.

Aðstoðarþjálfari íslenska liðsins Hlynur Bæringsson sagði gengi liðsins til þessa á mótinu vera nokkuð gott, sérstaklega gegn Slóveníu og Þýskalandi, en ekki í leiknum gegn Frakklandi. Segir hann möguleika Íslands á morgun gegn Grikklandi felast í því að mæta með jafn mikla orku og þeir eiga eftir að gera í leiknum. Þá segir hann einnig að það geti spilast inn í hendur íslenska liðsins að Grikkland sé að spila á heimavelli og að ef að leikurinn verði jafn sé pressan mun meiri á þeim.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -