Craig Pedersen, þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta er ekki búinn að gefa upp vonina að Helgi Már Magnússon verði með á EM í september. Helgi Már meiddist á ökkla á æfingu með félögum sínum í landsliðinu á mánudaginn sl.
“Helgi er gríðarlega reyndur leikmaður og veitir liðinu mikla þekkingu á leiknum og er mikill leiðtogi í hópnum,” sagði Pedersen í stuttu spjalli við Karfan.is. “Við vitum enn ekki nákvæmlega hversu mikil þessi meiðsli eru og vonum að sjálfsögðu að hann verði klár í slaginn hið fyrsta."
Mynd: JBÓ