Undir 18 ára stúlknalið Íslands lauk leik í dag á Evrópumótinu í Sófíu með sigri gegn heimastúlkum í Búlgaríu í leik upp á 7. sæti mótsins. Flottur árangur hjá liðinu, sem aðeins í þriðja skiptið í sögunni komst áfram í 8 liða úrslit keppninnar.
Karfan spjallaði við Fjólu Gerði Gunnarsdóttur leikmann Íslands eftir leik í Sófíu.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil