spot_img
HomeFréttirÞetta er liðið sem mætir þeim bestu á Evrópumótinu 2023 - Leikar...

Þetta er liðið sem mætir þeim bestu á Evrópumótinu 2023 – Leikar hefjast á laugardaginn

U20 ára landslið karla eru nú á Krít í Grikklandi þar sem A-deild Evrópumóts FIBA fer fram frá 8. til 16. júlí í Heraklion.

Keppni hefst á laugardaginn en Ísland leikur í riðli með Frakklandi, Slóveníu og Þýskalandi og á fyrsta leik gegn Slóveníu. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1.-8. og 9.-16. Aðeins 16 bestu þjóðir Evrópu leika í A-deild á hverju ári og því mikið afrek að leika í deild þeirra bestu en þetta er í þriðja sinn sem Ísland á lið í A-deild U20 karla.

Hérna er heimasíða mótsins

Líkt og á öðrum Evrópumótum FIBA verða beinar útsendingar, lifandi tölfræði og önnur umfjöllun aðgengileg án endurgjalds í kringum mótið.

Undir 20 ára lið karla

Ágúst Goði Kjartansson · Uni Basket Padeborn, Þýskaland

Alexander Óðinn Knudsen · Haukar

Almar Orri Atlason · Bradley, USA

Elías Bjarki Pálsson · Njarðvík

Eyþór Lár Bárðarson · Tindastóll

Ísak Örn Baldursson · Fjölnir

Jonathan Cole Sigurdsson · Brunswick, USA

Kristján Fannar Ingólfsson · Stjarnan

Ólafur Ingi Styrmisson · Keflavík

Orri Gunnarsson · Haukar

Sölvi Ólason · Breiðablik

Tómas Valur Þrastarson · Þór Þorlákshöfn

Daníel Ágúst Halldórsson, Haukum, meiddist á NM og missir því af EM mótinu. 

Þjálfari: Pétur Már Sigurðsson

Aðstoðarþjálfarar: Hlynur Bæringsson og Dino Stipcic

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -