spot_img
HomeFréttirFrí í dag

Frí í dag

Leikmenn íslenska liðsins og aðrir í B-riðli Evrópumótsins í Berlín fá frí frá leikjum í dag. Margir af leikmönnum liðanna eflaust fegnir hvíldinni.  Íslenskir dómarar hafa hins vegar ekki setið auðum höndum á meðan leikmenn hvíla sig og sitja í dag námskeið á vegum FIBA í dómgæslu. Þar mætir m.a. heimsþekktur og margreyndur NBA-dómari að nafni Ronnie Nunn og heldur fyrirlestur.

 

B og C riðlar eru í fríi í dag en spilað verður í A og D riðlum eftir sem áður. Þeir verða hins vegar í fríi á morgun. Leikir í B-riðli halda svo áfram á morgun kl. 12:30 að íslenskum tíma með leik Serbíu og Íslands. Stórleikur Þýskalands og Tyrklands hefst kl. 15:45 og deginum lýkur með leik Spáns og Ítalíu kl. 19:00.

 

Fréttir
- Auglýsing -