Undir 18 ára lið stúlkna leikur lokaleik riðlakeppni sinnar í dag Evrópumótinu í Búlgaríu.
Það sem af er móti hafa þær unnið Danmörku, Holland og Makedóníu, en í dag mæta þær Króatíu í lokaleik riðlakeppninnar.
Þær hafa þó þá þegar tryggt sig áfram í átta liða úrslit mótsins, en það er aðeins í þriðja skipti frá upphafi sem liðið nær jafn góðum árangri.
Karfan spjallaði við Baldur Már Stefánsson aðstoðarþjálfara liðsins fyrir leik í Sófíu.