Jón Arnór Stefánsson sýndi Spánverjum í gærkvöldi að hann á heima í bestu deild Evrópu með frammistöðu sinni í leik Íslands og Spánar í gærkvöldi. Jón skoraði 17 stig, tók 4 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Þar að auki stal hann 2 boltum með frábærum varnarleik. Karfan.is hefur því valið Jón Arnór lykilmann leiksins.