Tindastóll og FSu áttust við í sveiflukenndum leik í Lengjubikarnum í Síkinu í kvöld. Leiknum lauk með 10 stiga sigri heimamanna sem eru því búnir að vinna tvo fyrstu leiki sína í keppninni.
Heimamenn byrjuðu sterkt og fljótlega var staðan orðin 13-2. Gestirnir tóku leikhlé og komu gríðarsterkir tilbaka eftir það og náðu 17-2 kafla og heimamenn virtust ráðalausir. Cristopher Caird fór hamförum fyrir gestina, skoraði og stal boltanum hinumegin. Arnþór og Lewis sáu þó til þess að Tindastóll leiddi eftir fyrsta fjórðung 29-25.
Tindastólsmenn voru svo sterkari í 2. fjórðung og Flake og Helgi Margeirs komu inn með stórar körfur. Staðan 52-39 í hálfleik og staðan vænleg hjá heimamönnum. Tindastóll átti svo fyrstu 5 stigin í seinni hálfleik og allt í einu var staðan orðin 57-39 og eftir það átti sigurinn að vera formsatriði. Gestirnir sýndu þó mikla þrautsegju og enn var það Cristopher Caird sem hélt þeim inni í leiknum. Hann átti stórleik í kvöld með 29 stig og 10 fráköst. FSu náði að minnka muninn í 5 stig í lokin en Pálmi Geir og Lewis kláruðu leikinn fyrir heimamenn og skoruðu síðustu 5 stigin.
Haustbragur var á leiknum og mikil hreyfing á liðum, sérstaklega Tindastól þar sem nýr þjálfari var greinilega að prófa margt og reyna að kynnast leikmönnum. Pieti Poikola var nokkuð ánægður í leikslok og sagði þetta hafa verið dæmigerðan pre-season leik og ekki margt komið á óvart.
Myndir og texti: Hjalti Árna
Mynd: Lewis var öflugur í kvöld