Litháar stöðvuðu Serbnesku vélina í undanúrslitum Eurobasket 2015 í Frakklandi í dag. Magnaður varnarleikur Litháa hélt Serbum í aðeins 64 stigum og með 33% skotnýtingu. Fram að þessu höfðu Serbar ekki tapað einum leik. Lokatölur 67-64.
Milos Teodosic leiddi Serba með 16 stig en Jonas Valanciunas var frábær fyrir Litháa með 15 stig og 4 varin skot.
Litháar mæta því Spánverjum í úrslitum á sunnudaginn en Serbar spila um þriðja sætið við Frakka sama dag.
Mynd: FIBA.com