Þrennurnar hafa ekki látið eftir sér bíða heldur detta inn hver af annarri. Jón Axel Guðmundsson skilað myndarlegri þrennu í hús í gærkvöldi gegn FSu í Iðu, 16 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar. Alltaf gaman að fá nýtt blóð í baráttuna um þrennukóng ársins.
Domino's deild karla:
16/10/2015 – Jón Axel Guðmundsson, Grindavík – 16 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar – Sigur
1. deild kvenna:
11/10/2015 – Guðrún Ósk Ámundadóttir, Skallagrímur – 10 stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar – Sigur
Þrennukóngar og -drottningar ársins:
Jón Axel Guðmundsson, Grindavík: 1
Guðrún Ósk Ámundadóttir, Skallagrímur: 1