Karfan.is hefur valið Helenu Sverrisdóttur, Haukum, Lykilmann 1. umferðar Domino's deildar kvenna. Helena skoraði 35 stig í sigri Hauka á Stjörnunni í Ásgarði. Þar að auki tók hún 15 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Hún skaut boltanum einnig afburðavel eða 58%. Hún spilaði einnig fantavörn í leiknum með 6 stolna bolta í kaupbæti. Skal þá engan undra að hún skoraði 54 framlagsstig í leiknum með frammistöðu sinni.