Lykilmaður 2. umferðar hjá okkur hér á Karfan.is hefur verið valinn Earl Brown Jr. Earl Brown sýndi óhemju ákefð og dugnað í leiknum í gær gegn liði Hauka þar sem Keflvíkingar tóku sigur eftir tvær framlengingar. Brown setti niður 35 stig og hirti 19 fráköst í leiknum sem og var Keflvíkingum ómissandi í gegnum allan leikinn. Earl smitaði líka með baráttu sinni út frá sér og gerði aðra betri.