spot_img
HomeFréttirFannar Helgason rekinn af velli í leik Hamars og ÍA

Fannar Helgason rekinn af velli í leik Hamars og ÍA

Hamar og ÍA mættust í frystikistunni í Hveragerði í kvöld, en rimmur þessara liða hafa alltaf verið með miklu fjöri.  Skagamenn komu til þess að sigra og leiddu fyrsta leikhluta 17-18. Í öðrum leikhluta var þó annað uppá teningnum og þar voru Hamarsmenn sem léku á alls oddi, en ÍA beit þó frá sér. Staðan 51-45 í hálfleik. Hamarsmenn gengu svo frá leiknum í þriðja leikhlutanum þegar þeir leiddu 76-59. Í fjórða leikhluta var svo meira um læti en kæti. Ýmsir pústrar urðu á vellinum og þar á meðal var Fannar þjálfari Skagamanna rekinn úr húsi, en atvikið má sjá á snapchati HamarsTV (Username: Hamartv). Leiknum lauk með þægilegum sigri Hamars 98-86

 

Texti:  Ívar Örn Guðjónsson

 

Fréttir
- Auglýsing -