Valencia BC sigraði sinn fjórða leik í Eurocup í gærkvöldi, 88-59. Jón Arnór Stefánsson lék 13 mínútur í leiknum og var með 2 stig, 2 fráköst, 3 stoðsendingar og 1 stolinn bolta.
Valencia hefur sigrað alla fjóra leiki sína í Eurocup og mætir næst belgíska liðinu Spirou Charleroi á miðvikudaginn í næstu viku, 11. nóvember.