Borche Ilievski Sansa hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks ÍR í körfuknattleik. Borche tekur við liðinu af Bjarna Magnússyni sem hætti með liðið í gær. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild ÍR sem send var út fyrir skemmstu.
Borche hefur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu ásamt Sigurði Gíslasyni mun áfram sinna því starfi, eftir því sem fram kemur í tilkynningunni. Borche þjálfaði liðið á æfingu í kvöld og er fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn annað kvöld kl. 18:00 í Ljónagryfjunni í Njarðvík.