Hildur Björg Kjartansdóttir hélt upp á afmælið sitt í gær með að skora 12 stig og taka 6 fráköst í stórsigri UTRGV á Texas Lutheran, 38-90. Hildur var allt í öllu í sóknarleik UTRGV og skoraði hvaðanæva af vellinum eins og sést í myndbandinu hér að neðan.
Elvar Friðriksson og félagar í Barry University voru nálægt því að sigra Florida Southern eftir að hafa náð að saxa niður mikinn mun í seinni hálfleik. Elvar setti niður þrist þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum til að minnka muninn í 6 stig. Elvar átti einnig tvær stoðsendingar í lok leiks þar sem liðið náði að jafna en tvö vítaskot frá andstæðingunum gerðu svo út um leikinn, 72-74. Elvar endaði með 9 stig og 5 stoðsendingar auk þess að stela boltanum einu sinni.