spot_img
HomeFréttirÚrslit: Ungverjaland of stór biti fyrir íslenska kvennalandsliðið

Úrslit: Ungverjaland of stór biti fyrir íslenska kvennalandsliðið

Íslenska kvennalandsliðið þurfti að láta í minni pokann fyrir Ungverjalandi í Miskolc nú fyrir skömmu, 72-50. Ekki vantaði baráttuna í íslenska liðið og segja þessi úrslit minnst um það hvort annað liðið lagði sig meira fram en hitt. Þær ungversku voru bara einu númeri of stórar. Helena Sverrisdóttir leiddí íslenska liðið með 16 stig og 6 fráköst. Gunnhildur Gunnarsdóttir kom þar á eftir með 12 stig og 4 fráköst. Hjá Ungverjalandi var Tijana Krivacevic stighæst með 27 stig og 5 fráköst. 

 

Tölfræði leiksins

 

Mynd: JBÓ

Fréttir
- Auglýsing -