Martin Hermannsson var með 15 stig og 3 stoðsendingar í þriðja sigri LIU í vetur, nú á NC Central 77-78 eftir háspennu lokamínútur. LIU hafði lent 12 stigum undir um miðbik seinni hálfleiks en tókst að vinna upp þann mun á síðustu 10 mínútunum og innsigla sigurinn með grjóthörðum varnarleik í lokin.
Kvennalið Marist háskólans er enn án sigurs en liðið tapaði nú fjórða leik sínum í vetur, nú gegn St. John's háskólanum frá New York 47-61. Lovísa Henningsdóttir var í byrjunarliðinu í þessum leik en náði ekki að setja mark sitt á leikinn og lauk leik stigalaus með 2 fráköst og 1 stoðsendingu.