spot_img
HomeFréttirFrank Booker kominn til Flórída

Frank Booker kominn til Flórída

Frank Booker jr. sem lék með Oklahoma Sooners á síðustu leiktíð, hefur fært sig um set og mun nú ganga í Florida Atlantic University. Þetta gerði hann í von um að fá fleiri mínútur með FAU.

 

Oklahoma Sooners fóru alla leiðina í 16 liða úrslit NCAA lokakeppninnar á síðustu leiktíð og er með um 8 bakverði á leikmannalista. Þar að auki er Buddy Hield, annar bakvörðurinn í byrjunarliði Oklahoma, talinn einn af þeim betri í háskólaboltanum þetta árið með 25,3 stig og 5,7 fráköst í leik. Booker var með um 14 mínútur að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.

 

FAU hefur leikið í 1. deild háskólakörfuboltans síðan 1993 og er í Atlantic Sun riðli deildarinnar. FAU fóru síðast í úrslitakeppni háskólaboltans 2002 þar sem þeir töpuðu fyrir Alabama háskólanum.

 

Booker mun þurfa að sitja hjá þessa leiktíð þar sem reglur NCAA skylda íþróttamenn til þess sem flytjast milli skóla í sömu deild innan NCAA. Það þýðir að eitt ár bætist við feril hans og hann getur þá klárað næstu tvö með FAU. Þessi regla átti t.d. ekki við Elvar Má Friðriksson sem færði sig frá LIU Brooklyn til Barry University í Miami í sumar en sá skóli er í 2. deild NCAA háskólaboltans.

Fréttir
- Auglýsing -