Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?
Við fengum leikmann ?EZ Nymburk og íslenska landsliðssins, Hörð Axel Vilhjálmsson, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.
Lið ?EZ Nymburk heimsækir lið BK Opava í dag í tékknesku deildinni.
Áður höfðum við fengið lista frá:
Hörður:
"Hérna er listinn minn.."
Eminem – Loose Yourself
Þetta lag hefur fylgt mér síðan ég man eftir mér í raun, hef alltaf hlustað mikið á þetta lag, þá sérstaklega fyrir stóra leiki og stór “moment” í mínu lífi.
Tengi mikið við þetta lag, það mikið að ég hef látið húðflúra á mig setningu úr laginu, til að minna mig á mín markmið og halda mér fókuseruðum.
Hjálmar – Leiðin Okkar Allra
Þetta er nýtt á listanum. Farinn að hlusta á þetta lag nánast daglega til að endurupplifa part af þeim tilfinningum sem maður fann fyrir á Eurobasket. Eintaklega gott lag sem kemur manni í þægilegt hugarástand.
Herra Hnetusmjör ásamt Joe Frazier – Jámarh
Þetta lag er mjög litað af mínum herbergisfélaga frá Eurobasket. Enda hafði ég ekki hugmynd um hver Herra Hnetusmjör væri áður en herra Brooklyn kynnti mig fyrir honum.
Jón Jónsson – Gefðu allt sem þú átt
Þeir sem þekkja mig mjög vel vita að ég hef mikið álit af þeim bræðrum sem tónlistarmönnum og get hlustað endalaust á þá.
Annað lag sem hefur fylgt mér lengi…
MC Gauti – Strákarnir
Þetta var líka spilað óspart inná herbergi hjá okkur strákunum (ahh see what I did there…)
Óðinn Valdimarsson – Ég er kominn heim
Þessi útgáfa af ég er kominn heim er líka kominn efst á lista yfir hluti sem ég hlusta á og horfi. Eitt ótrúlegasta augnablik sem ég hef upplifað og vona innilega að við getum upplifað eitthvað svipað með landsliðinu á komandi árum.