Karlalið Marist háskólans átti ekki góðan dag gegn sterku liði Univeristy of Albany í gærkvöldi og tapaði stórt eða 75-53. Marist hélt í við Albany liðið í fyrri hálfleik sem lauk 32-28 fyrir Albany. Illa gekk að halda aftur af þeim hins vegar í seinni.
Kristinn Pálsson lék 28 mínútur í leiknum en var án stiga en var þó með 4 fráköst, 1 stoðsendingu, varið skot og stolinn bolta.