spot_img
HomeFréttirEnn einn háspennusigurinn hjá Martin og LIU

Enn einn háspennusigurinn hjá Martin og LIU

Martin Hermannsson og LIU hörkuðu af sér enn einn háspennusigurinn í gærkvöldi, nú á Niagra University,  80-79 í framlengdum leik. Martin spilaði 43 mínútur og skoraði 17 stig, tók 3 fráköst og gaf 7 stoðsendingar, auk þess að stela 2 boltum. LIU hafa nú sigrað 5 af 8 leikjum sínum í vetur.

 

Elvar Friðriksson átti frábæran leik fyrir Barry University í gærkvöldi þegar liðið sigraði Saint Leo skólann 87-85. Elvar skoraði 15 stig, tók 3 fráköst og gaf 4 stoðsendingar auk þess að stela 3 boltum. Barry U eru 7-2 í vetur.

 

Ekkert gengur hjá karlaliði Marist háskólans en þeir töpuðu sínum sjötta leik í gærkvöldi með aðeins 1 stig, 70-69 gegn Delaware skólanum. Kristinn Pálsson skoraði 3 stig, tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Marist hefur unnið aðeins 2 af 8 leikjum sínum í vetur.

 

Kvennalið Marist átti heldur betri dag í gær og sigraði örugglega Boston University 73-54 þar sem Lovísa Henningsdóttir spilaði aðeins 5 mínútur og skoraði 2 stig.

 

Furman töpuðu illa fyrir Gardner-Webb skólanum í gærkvöldi 73-53 þar sem Kristófer Acox skoraði 2 stig og tók 3 fráköst á 20 mínútum.

 

 

Columbus State spilaði tvo leiki um helgina. Sigruðu Miles skólann 106-98 á laugardaginn þar sem Matthías Sigurðarson skoraði 2 stig á 9 mínútum en töpuðu svo fyrir Lane College 69-74 í gærkvöldi. Matthías spilaði aðeins 6 mínútur í þeim leik og skoraði ekkert.

 

Black Hills spiluðu einnig tvo leiki um helgina, en liðið tapaði fyrir Chadron State 59-74 á laugardaginn þar sem Erlendur Stefánsson skoraði 2 stig, tók 1 frákast og gaf 1 stoðsendingu. Á sunnudaginn sigruðu þeir hins vegar Regis University 84-59 en Erlendur kom lítið við sögu í þeim leik.

 

Fréttir
- Auglýsing -