Þetta sést (sem betur fer) ekki oft. Garlos Green, bróðir fyrrum troðslukóngs NBA deildarinnar Gerald Green og leikmaður Tubingen Walter Tigers, tróð boltanum í eigin körfu!
Í leik Basketball Braunschweig og Tubingen Walter Tigers í þýsku deildinni tekur Lukas Gertz víti sem hann klikkar á en Green fylgir fast á eftir og treður boltanum með tilþrifum. Óvíst er hvað hann var eiginlega að hugsa eða hvort hann hafi á annað borð verið að hugsa eitthvað. Troðslan virðist ekki vera neitt slysaverk.