Helgi Már Magnússon var kannski ekki stigahæstur í sínu liði gegn FSu í síðustu viku, en framlag hans kom á mjög mikilvægum tíma þegar KR vantaði. Tjakkurinn skoraði 27 stig og flest í seinni hálfleik þegar mest á reyndi, tók 9 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Ekki er gert lítið úr ótrúlegri frammistöðu Michael Craion sem skoraði 39 stig og tók 18 fráköst, en Helgi Már Magnússon hefur verið valinn Lykilmaður 10. umferðar Domino's deildar karla.