Canisius skólinn vann sinn sjötta leik í vetur gegn Lamar University á mánudagskvöldið, 57-55. Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði 8 stig á 31 mínútu auk þess að takak 6 fráköst. Sara Rún Hinriksdóttir lék aðeins 4 mínútur í leiknum og var stigalaus. Canisius hefur nú sigrað 6 af 8 leikjum sínum í vetur.
Enn eitt tapið hjá St. Francis staðreynd og er liði nú búið að tapa 7 leikjum í vetur og þar af 3 í röð núna. Gunnar Ólafsson átti góðan leik fyrir St. Francis þótt hann hafi verið að hitta illa. Gunnar skoraði 2 stig en stal 3 boltum á 34 mínútum í leiknum. Dagur Kár Jónsson spilaði 15 mínútur og skoraði 2 stig, en gaf 3 stoðsendingar.