spot_img
HomeFréttirMatthías með 10 stig í öruggum sigri CSU

Matthías með 10 stig í öruggum sigri CSU

Matthías Sigurðarson lék vel með CSU í 49-74 sigri liðsins á USC Aiken um helgina. Matthías var með 10 stig á aðeins 13 mínútum í leiknum auk þess að bæta við 2 fráköstum.

 

Elvar Friðriksson var með 9 stoðsendingar í 8. sigri Barry University í röð. Elvar var einnig með 5 stig og 3 fráköst.

 

Kristinn Pálsson skoraði 8 stig í mikilvægum sigri Marist á Army West Point á sunnudaginn. Kristinn var þar að auki með 3 fráköst og hitti úr báðum þriggja stiga skotum sínum.

 

Furman tapaði illa fyrir Dayton á laugardaginn, 50-70. Kristófer Acox setti niður 8 stig og tók 2 fráköst á 21 mínútu í leiknum. 

 

LIU Brooklyn tapaði á heimavelli gegn Sam Houston State, 75-69. Martin Hermannsson skoraði 5 stig og gaf 3 stoðsendingar, auk þess að taka 3 fráköst.

 

St. Francis sigraði Liberty 55-64. Gunnar Ólafsson skoraði 3 stig og Dagur Kár setti 7 stig af bekknum.

 

Hildur Björg Kjartansdóttir lék vel fyrir UTRGV í sigri liðsins á Houston háskólanum, 55-45 á sunnudaginn. Hildur skoraði 14 stig og tók 7 fráköst.

 

Stúlkurnar í Canisius sigruðu Northeastern háskólann 68-57 í gærkvöldi. Margrét Rósa setti 6 stig og tók 4 fráköst. Sara Rún lék aðeins 9 mínútur án þess að skora en tók niður 3 fráköst í leiknum.

 

Black Hills sigraði Western New Mexico 57-68 og skoraði Erlendur Stefánsson 5 stig á aðeins 8 mínútum.

 

Fréttir
- Auglýsing -