Grindvíkingar verða án erlends atvinnumanns í kvöld þegar nýliðar FSu mæta í Mustad-höllina í Grindavík í tólftu umferð Domino´s-deildar karla. Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindvíkinga staðfesti þetta við Karfan.is áðan en Charles „Chuck“ Garcia er ekki væntanlegur til Íslands fyrr en á morgun.
„Ef hann kemur á morgun þá er stefnan að bikarleikurinn gegn Skallagríms verði hans fyrsti hérlendis,“ sagði þjálfari Grindvíkinga við Karfan.is í dag en Skallagrímur og Grindavík mætast í Borgarnesi í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar næsta mánudag.
Að Chuck sé ekki kominn til landsins eru ekki einu tíðindin af Grindvíkingum þessi dægrin því Hilmir Kristjánsson er enn að jafna sig eftir aðgerð og þá verða þeir Jóhann Árni Ólafsson og Páll Axel Vilbergsson báðir fjarri góðu gamni í kvöld vegna meiðsla.