B-lið Njarðvíkinga mætir úrvalsdeildarliði Keflavíkur í Ljónagryfjunni í kvöld í síðasta leik 8 liða úrslita Powerade bikarsins. Nokkurs konar Bónusútgáfu af El Classico er um að ræða en B-liðið prýða Sverrir Þór Sverrisson sem lengi lék með Keflavík og einnig Njarðvík hér áður auk Halldórs Rúnars Karlssonar sem varð t.d. Íslandsmeistari með Njarðvík 2006.
Leikurinn hefst kl. 19:15 í Njarðvík í kvöld.