Sveinbjörn Claessen átti frábæran leik með ÍR í Hertz hellinum í gærkvöldi þegar liðið sigraði FSu í mikilvægum botnslag, 106-72. Sveinbjörn skoraði 26 stig og var drifkrafturinn lengi vel í sóknarleik liðsins. Sveinbjörn segir liðið vera að stiga upp eftir erfiða tíma og nú sé kominn tími til að bretta upp ermarnar og stefna á úrslitakeppnina.