LeBron James jr. (0) og Bryce Maximus James (30), synir LeBron James fóru á kostum á körfuboltavellinum á dögunum. Lebbi var sjálfur í stúkunni að horfa og guttarnir létu ljós sitt skína. Skoruðu út um allt á vellinum, gáfu stoðsendingar og tóku fráköst. Svo virðist sem gamli hafi ekki gleymt að kenna þeim vörn heldur.