FIBA Europe Cup leikur sænska liðsins Boras Basket og Slask Wroclaw frá Póllandi fer fram í Boras, Svíþjóð í kvöld. Ísland verður með tvo fulltrúa á þessum leik en Sigmundur Már Herbertsson mun dæma leikinn. Landsliðsmaðurinn Jakob Sigurðsson leikur með Boras Basket.
Leikurinn er í milliriðlum Evrópubikarkeppninnar þar sem Boras er í þriðja sæti af fjórum eftir fimm leiki, með einn sigur. Wroclaw er hins vegar á botninum með fimm tapleiki.
Meðdómarar Sigmundar verða Oskars Lucis frá Lettlandi og Evgeny Vetrov frá Rússlandi. Eftilitsmaður verður Pekka Saros frá Finnlandi.
Með Boras Basket leikur einnig Adama Darbo sem lék með Grindavík áður fyrr.