Lykilmaður 17. umferðar Domino's deildar kvenna er Alexandra Ford að mati Karfan.is. Alexandra átti góðan leik fyrir Hamar í öðrum og jafnfram afar mikilvægum sigri liðsins á Stjörnunni í Ásgarði. Ali stýrði sóknarleik liðsins af festu og lagði grunninn að sigrinum.