spot_img
HomeFréttirÍsland mætir Svíþjóð kl. 16:15 í fjórða leik Norðurlandamótsins

Ísland mætir Svíþjóð kl. 16:15 í fjórða leik Norðurlandamótsins

Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur í dag sinn fjórða leik á Norðurlandamótinu í Södertalje í Svíþjóð, en Ísland leikur fimm leiki á mótinu, gegn Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Noregi og Eistlandi.

Fyrir leik dagsins hefur Ísland unnið Noreg og Danmörku, en í gær töpuðu þær fyrir Finnlandi

Í fjórða leik mótsins mætir Ísland liði heimakvenna í Svíþjóð, en leikurinn verður bæði í beinni útsendingu og lifandi tölfræði kl. 16:15.

Hérna er heimasíða mótsins með dagskrá, lifandi tölfræði og öðrum upplýsingum

Hérna verður hægt að horfa á leiki mótsins í beinni útsendingu

Hérna má sjá lið Íslands á mótinu

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -