spot_img
HomeFréttirHaukur Helgi ekki með í kvöld gegn Þór

Haukur Helgi ekki með í kvöld gegn Þór

Njarðvíkingar og Þór leika í kvöld í Þorlákshöfn og má segja að sjaldan hafi verið leikur jafn mikilvægur fyrir þessi lið. Bæði lið með jafnmörg stig í deildinni og slegist er nú hart um sæti í úrslitakeppninni.  Þórsarar sigruðu fyrri leik liðanna nokkuð óvænt að margir töldu með Ragnar Nat spilandi með flensu og Vance Hall á annari löppinn og svo auðvitað Þorstein Ragnarsson sem lá heima veikur.  Njarðvíkingar verða vængbrotnir þar sem að Haukur Helgi Pálsson mun ekki spila með liðinu.  "Við tökum enga sénsa með Hauk, hann lenti í smá hnjaski á æfingu fyrir nokkru og við viljum hafa hann 100% í úrslitakeppninni" sagði Teitur Örlygsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga í spjalli

 

Góðu fréttirnar eru þær að Logi Gunnarsson kemur aftur inn í lið Njarðvíkinga en hann spilaði ekki með gegn Stjörnunni í síðasta leik vegna flensu. 

Fréttir
- Auglýsing -