Hildur Björg Kjartansdóttir hefur verið valin leikmaður vikunnar í WAC riðlinum eftir leiki vikunnar. Hildur átti frábæran leik gegn New Mexico State en þá skoraði hún 17 stig og tók 15 fráköst. Þar að auki var hún með 2 stoðsendingar og stal 2 boltum. Þetta var sjötta tvennan hennar í vetur.
Þetta var í 11. skiptið sem Hildur var með tveggja stafa tölu í stigum og í 10. skiptið í fráköstum.
Magnaður leikmaður hún Hildur Björg.