Kristinn Marinósson hefur svo sannarlega verið betri en enginn af bekk þeirra Haukamanna síðustu leiki en í kvöld skellti hann 18 stigum á Njarðvíkinga. Kristinn hefur tekið að sér það hlutverk að koma af bekknum þrátt fyrir að eiga heima í byrjunarliði nánast allra liða í deildinni. Kristinn sagði sína menn í kvöld hafa verið með sterkann varnarleik sem hefur skilað þeim góðum árangri síðustu leikjum.