Það verður rándýr mönnun á Sportrásinni í kvöld þegar Doddi litli fær tvo þjóðþekkta ÍR-inga og einn lítið þekktan ÍR-ing í heimsókn til að ræða úrslitakeppnina. Það eru þeir Herbert Arnarson, Eiríkur Önundarson og okkar maður Hörður Tulinius.
Rædd verður uppstilling liða í úrslitakeppninni og spáð í spilin fyrir framhaldið. ÍR-ingar hafa engra hagsmuna að gæta í þeirri keppni þar sem Breiðhyltingar verða komnir í frí… líkt og undanfarin ár. Þeir Herbert og Eiríkur hafa marga fjöruna sopið þegar kemur að körfuboltanum og vita hvað þeir eru að tala um þegar kemur að íþróttinni fögru.
Þeir kumpánar verða í loftinu um það leyti sem leikirnir eru að klárast eða um kl. 9 og því um að gera að stilla sig inn á Rás 2 og leggja við hlustir.